|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 10 maí 2012 09:51 |
|
Meistararnir okkar hafa undanfarið verið að skoða húsin í bænum. Þau hafa fundið hús þar sem fólk á heima, hús fyrir eina fjölskyldu og hús fyrir margar fjölskyldur. Í hverfinu okkar eru eiginlega bara svoleiðis hús og svo leikskólar. Niðri í bæ eru eiginlga engin fjölskylduhús því þar eru bara búðir og veitingastaðir og svo hús frá því í gamla daga. Þau hafa komist að því að hús eru af öllum stærðum og gerðum og með alls konar skrauti, mismunandi hurðum og gluggum og hafa mismunandi notagildi. Þessar skoðunarferðir hafa vakið upp margar spurningar og vangaveltur. Hér eru nokkrar:
Af hverju er kóróna bæði á dómkirkjunni og alþingishúsinu?
Alþingishúsið er byggt eins og legóhús og það væri rosalega gaman að eiga nógu marga legókubba til að byggja svona hús?
Þetta eru gömul hús því þau eru svo óhrein
Af hverju kemur svona fýluandlit út úr húsinu? (apótekinu)
Einnig voru margar vangaveltur um það hvað það eiginlega væri sem Kristján IX heldur á
|
|
|
Heimsókn í Tónskóla Sigursveins |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 16 apríl 2012 13:58 |
|
Börn úr Jörfa sem fædd eru árin 2006 og 2007 hafa verið að vinna verkefni í samstarfi við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Þau hafa æft nokkur lög við texta eftir Ómar Ragnarsson og enduðu á því að fara í heimsóknir í Tónskólann í Hraunbergi á föstudaginn og í dag (mánudag). Þar sugnu þau lögin við undirleik ungra hljófæraleikara sem léku á fiðlur, þverflautur, klarinett, píanó, trompet og slagverk. Eftir sönginn fengu þau að prófa hljóðfærin. Þetta var mjög skemmtilegt verkefni sem veitti börnunum nýja sýn. |
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 20 febrúar 2012 12:43 |
|
Í tilefni af konudeginum buðu börnin í Jörfa til konukaffis á föstudaginn var.
Þau buðu til sín kvenkyns fjölskyldumeðlimum og var aldursbil gesta breitt og fjölskyldutengslin margskonar. Börnin höfðu bakað brauðbollur fyrir þetta morgunkaffi og buðu upp á þær ásamt áleggi og drykkjum. Þetta var mjög hugguleg stund sem allir nutu vel. |
|
Jörfabörn í kynningarmyndbandi |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 09 febrúar 2012 09:29 |
|
Í tilefni af degi leikskólans þann 6. febrúar auglýsti Kynningarnefnd Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda í leikskólum eftir myndbandsupptökum þar sem leikskólabörn segðu frá því af hverju þau eru í leikskóla og fleiru.
Þar sem þetta eru spurningar sem við leggjum oft fyrir börnin í Jörfa til þess að meta starfið okkar þá var lítið mál fyrir okkur að taka þátt og við sendum inn svör nokkurra barna hér í Jörfa. Kynningarnefndin klippti svo saman þau myndbönd sem bárust og nú er útkoman komin á netið. Kynningarmyndbandið er hægt að sjá hér. |
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 27 janúar 2012 13:10 |
|

Í dag var vasaljósadagur í Jörfa. Börnin máttu koma með vasaljós og það var leikið með þau í skammdeginu. Sögnfundurinn í morgun einkenndist af vasaljósum og þau voru hreyfð með tónlist sem var spiluð og sungin. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 6 |